Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:00
Verð
Frítt
Börn

Kakó Lingua | Arabískir tónar og skrautskrift með Amel Barich

Sunnudagur 19. mars 2023

Verið velkomin í skemmtilega tónlistar- og skrautskriftarstund með Amel Barich. Við syngjum arabísk lög, lærum nokkur arabísk orð og eigum notalega stund saman. Fólk af öllum aldri með ólíkan menningar- og tungumálabakgrunn er velkomið!

Á Kakó Lingua viðburðum kynnum við hvert annað fyrir nýjum tungumálum í gegnum einföld og skemmtileg verkefni í hvetjandi og notalegu umhverfi.
Viðburðirnir eru allir á Borgarbókasafninu Kringlunni og þátttaka ókeypis.
Viðburðirnir eru fyrir börn á öllum aldri sem langar að læra ný orð á skemmtilegan hátt,en þau yngstu gætu þurft á hjálp fullorðinna að halda.
Seinast, en alls ekki síst, það er alltaf heitt kakó á boðstólnum.

Facebook

Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is