Börn
FULLT | Klúbbur I Fyrir Harry Potter aðdáendur 9-12 ára
Miðvikudagur 6. október 2021
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 9-12 ára sem hafa brennandi áhuga á Harry Potter. Nú er fullt í klúbbnum en hægt er að skrá sig á biðlista.
Í klúbbnum koma aðdáendur Harry Potters saman til að spila, spjalla, teikna, föndra, horfa eða bara allt það sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera sem tengist Harry Potter. Einnig verður boðið upp á skemmtilegar smiðjur, s.s. með Quidditch kennslu, tálgun töfrasprota, búningagerð o.fl.
Klúbburinn er á hverjum miðvikudegi kl. 14.30-16.00 í Borgarbókasafninu Kringlunni
Athugið að einnig er klúbbur í Borgarbókasafninu Gerðubergi fyrir 13-16 ára á fimmtudögum kl. 16.30-18.00.
Leiðbeinendurnir eru mestu Harry Potter aðdáendur safnsins og tökum við vel á móti öllum krökkum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald en skráning er nauðsynleg.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar:
Rut Ragnarsdóttir Barnabókavörður