Krakkafjör | sögustundir, föndur og fleira
Við bjóðum leikskólabörn og foreldra sérstaklega velkomin upp á sögustundir, föndur, búninga, litabókamyndir, púsl og fleira í söfnunum á meðan verkfalli Eflingar stendur.
Skipulögð dagskrá alla virka daga á meðan verkfalli stendur:
Grófin 13-15
Drekadans | sögustund og föndur
Í dag verður lesin hin sígilda saga, Drekinn með rauðu augun eftir Astrid Lindgren. Eftir sögustundina lærum við að búa til skrautlega dreka úr pappa og litríkum pappír.
Kringlan kl. 13-15
Eitthvað óvænt! | Sögustund og föndur
Það verður spennandi að heyra hvaða sögu barnabókavörðurinn í Kringlunni mun bjóða upp á. Eftir sögustundina verður skemmtilegt föndur eða eitthvað annað gaman.
Sólheimar kl. 13-15
Föndrað af list
Barnabókavörðurinn í Sólheimasafni ætlar að bjóða upp á skemmtilegt föndur sem hentar leikskólabörnum og fjölskyldum þeirra til að stytta sér sundir í verkfallinu.