FULLBÓKAÐ - Minningabankinn | Námskeið með Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur
Okkur langar að bjóða þér að mæta með minningar þínar og gefa þér tíma og fá leiðsögn við að smíða úr þeim bókverk. Við munum gera tilraunir með texta, myndir og einfalt bókband. Komdu fagnandi og leggðu inn í Minningabankann á bókasafninu, þú þarft ekki að koma með neitt nema þig.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir leiðir vinnustofurnar ásamt rithöfundunum Auði Jónsdóttur, Evu Rún Snorradóttur, Kamillu Einarsdóttur og Natöshu S.
Aprílnámskeiðið hefst 18. apríl. Námskeið felur í sér fjórar vinnustofur á þriðjudögum milli klukkan 16:00-19:00 á Borgarbókasafninu Grófinni.
Námskeiðið á Facebook
Boðið er alls upp á þrjú námskeið, í febrúar, mars og apríl.
Skráning
Laust er fyrir 10 þátttakendur á hverju námskeiði.
Þátttaka er að kostnaðarlausu en skráning nauðsynleg.
Áhugasamir geta skráð sig með því að senda tölvupóst: dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is
Um verkefnið: Minningabankinn
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.
Frekari upplýsingar
Dögg Sigmarsdóttir
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka