Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Spjall og umræður

Leshringurinn Hrútakofinn

Miðvikudagur 1. mars 2023

Hrútakofinn er leshringurinn ætlaður karlmönnum sem vilja deila sinni lestrarreynslu og kynnast nýju lesefni.  
Hópurinn kemur sér saman um ákveðið lestrarþema fyrir hvern mánuði og meðlimir velja sér síðan sjálfir bók sem fellur að þeim ramma og kynna hana fyrir hópnum á næsta fundi.
 

Fundir í Hrútakofanum vorið 2023:
janúar |  frí
1. febrúar |  jólabókaflóðið 2022
1. mars |  Landalotterý (meðlimir draga land úr hatti og kynna bók eða höfund frá því landi)
5. apríl |  Bók sem tengist ákveðinni íþrótt, íþróttamanneskju eða íþróttaviðburði
3. maí | Alræðið
7. júní |  Bækur sem eru tilnefndar eða hafa fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin

Staðsetning: 2. hæð Borgarbókasafnsins Spönginni

 

Umsjón með hópnum og frekari upplýsingar: Gunnar Þór Pálsson
Skráning: hrutakofinnleshringur@gmail.com