Leshringurinn 101 | Korngult hár, grá augu
Skráning er á allflesta viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.
Sjá nánar HÉR.
• Staðsetning viðburðar: Torgið, á jarðhæð
• Hámarksfjöldi gesta: 12 manns. Skráið ykkur með því að senda tölvupóst á gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is. Örfá sæti laus!
• Boðið er upp á kaffi.
Leshringurinn 101 hittist í Grófinni annan þriðjudag í mánuði kl. 17:30-18:30. Í leshringnum viljum við skapa huggulega stemningu þar sem við komum saman, sötrum kaffi og spjöllum um bækur.
Í fyrsta leshring haustsins ræðum við bókina Korngult hár, grá augu eftir Sjón sem kom út á síðasta ári. Í bókinni skyggnist höfundur inn í hugarheim ungs manns á sjötta áratugnum sem aðhyllist þjóðernishyggju og vill leggja sitt af mörkum til að efla samtök nýnasista á heimaslóðum og á alþjóðavettvangi. Umfjöllunarefnið á brýnt erindi inn í samtímann í ljósi frétta undanfarin misseri um óhuggulegar birtingarmyndir rasisma hér heima og erlendis.
Dagskráin framundan:
6. október | Hans Jónatan – maðurinn sem stal sjálfum sér eftir Gísla Pálsson
3. nóvember | Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah
8. desember | Saga býflugnanna eftir Maja Lunde
Leshringurinn er opinn! Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á Guðrúnu Dísi Jónatansdóttur eða einfaldlega mætið á svæðið.
Við hvetjum góðvini Borgarbókasafnsins til að skrá sig í Bókaklúbbinn okkar á Facebook! Þar deilum við ýmsum bókmenntatengdum viðburðum og oft skapast líflegar umræður um alls kyns bókmenntir.
HÉR er að finna almennar upplýsingar um leshringi Borgarbókasafnsins...
Umsjón: Guðrún Dís Jónatansdóttir
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is