Um þennan viðburð
Húslestur | Anna Gyða og Eiríkur Guðmunds lesa
Í vetur fáum við að kynnast eftirlætistextum rithöfunda, grúskara og bókabéusa, sem heimsækja okkur einu sinni í mánuði. Að þessu sinni koma Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson og lesa fyrir okkur brot hvaðanæva að og deila með okkur töfrunum sem búa í hinu ritaða orði. Anna Gyða og Eiríkur stýrðu saman útvarpsþáttunum Lestinni á Rás 1 og hafa þau sinnt ýmsum rit- og útvarpsstörfum í gegnum tíðina.
Frítt er inn og við hvetjum fólk til að taka með sér handavinnuna, slökkva á snjalltækjunum og njóta þess að dvelja í augnablikinu.
Vinsamlegast skráið ykkur á viðburðinn, sjá form neðst á síðunni.
• Staðsetning viðburðar: Salurinn Berg, á efri hæð
• Kaffihúsið er opið.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri bókmennta
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is