Smiðjan og Skemman Úlfarsárdal

Skemman

Skemman er opin á þjónustutíma safnsins frá klukkan 10:00  til 18:00 alla virka daga en leikjatölvurnar eru einungis í boði frá klukkan 15:00 til 18:00.

Þar er skanni sem hægt er að skanna inn gamlar ljósmyndir og varðveita á stafrænuformi, þrífótur fyrir síma og grænn bakgrunnur fyrir upptökur, teikniplatti og MIDI hljómborð, þar eru einnig leikjatölvur þar sem hægt er að spila vinsælustu tölvuleikina með vinunum eða í einrúm.

Frítt aðgengi er að öllum tækjum í Skemmunni. 

Hægt er að bóka tíma í Skemmunni neðar á þessari síðu.

Smiðjan

Smiðjan er rými þar sem við bjóðum upp á minni námskeið, smiðjur og fræðsluerindi fyrir börn, unglinga og fullorðna og notendur geta lært saman eða bókað fyrir fundi. Í Smiðjunni er vaskur og stór skjár og hægt er að stækka rýmið með því að opna fram í aðalrýmið eða inn í tölvuverið.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri
unnar.geir.unnarsson@reykjavik.is | 411 6270

 

Bóka tíma í Skemmunni