
Langar þig að vinna með skólakrökkum og íbúum á Kjalarnesi?
Óskað er eftir öflugum starfsmanni í 55% starf í nýtt samrekið almennings- og skólasafn á Kjalarnesi.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir mikilli samskiptahæfni, sýnir frumkvæði og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð. Starfið krefst metnaðar, skipulagshæfni og sveigjanleika.
Borgarbókasafnið Klébergi er nýtt samrekið almennings- og skólabókasafn sem staðsett er í Klébergsskóla. Safnið mun sinna skólabókaþjónustu en einnig verður það opið almenningi tvo eftirmiðdaga í viku.
Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs. Umsóknarfrestur er til 31.1 2023.
Sjá auglýsingu á vef Reykjavíkurborgar...
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri
unnar.geir.unnarsson@reykjavik.is | 411 6270