Foreldramorgnar - Borgarbókasafnið
Hittumst á Krílastund á fimmtudagsmorgnum í Grófinni.
Við tökum vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Við bjóðum upp á foreldramorgna þar sem við leggjum áherslu á notalega samveru, leik, lestur og spjall. Öðru hverju er boðið upp á skipulagða fræðslu sem tengist uppeldi og umönnun ungbarna. Þar skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Mikið er til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að grípa með sér í leiðinni.
Og svo er auðvitað alltaf heitt á könnunni!
Foreldramorgnar Borgarbókasafnsins 2021:
Krílastundir á Borgarbókasafninu Grófinni
Alla fimmtudaga 10:30 - 11:30
Hafðu samband:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir,
verkefnastjóri barnastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is