Kennsla á saumavélar og ráðgjöf við saumaskapinn
Góð ráð frá fagmönnum við saumaskapinn

Information about the event

Time
16:30 - 18:00
Price
Free
Target
Everyone
Makerspace

Verkstæðin | Aðstoð við saumaskapinn

Monday December 5th 2022

Ráðgjöf við saumaskapinn og kennsla á saumavélar.

Á Verkstæðinu í Árbæ er góð aðstaða fyrir þau sem hafa gaman að saumaskap en þar er að finna tvær venjulegar saumavélar og eina overlock vél. Á Verkstæðinu er því hægt að fá útrás fyrir sköpunargleðina; sníða, sauma eða gera við flíkur. Gott er að bóka tíma fyrirfram til að vera viss um að komast að á þeim tíma sem óskað er eftir en vélarnar eru þó aðgengilegar hafi enginn tekið frá tíma.

Við bjóðum upp á aðstoð einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina en þá eru Andzelina Kusowska Sigurðsson og Elínborg Ágústsdóttir gestum innan handar. Ekki þarf að skrá sig, aðeins að mæta. Fylgist með í viðburðadagatalinu og á Facebook síðu safnsins.

Upplagt fyrir þau sem eru að velta einhverju fyrir sér varðandi saumaskapinn, hvort sem um byrjendur eða lengra komna er að ræða. Það er alltaf gott að fá ráðgjöf og spjalla um þau verkefni sem unnið er að.

 

Viðburðurinn á facebook

 

Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Sími: 411 6250

Materials