Rými fyrir lýðræðissamtöl

Information about the event

Time
10:00
Price
Free
Exhibitions

Anna M. hefur samtal | Stofan - A Public Living Room

Wednesday November 24th 2021 - Tuesday November 30th 2021

Nóvemberútgáfa Stofunnar er sköpuð af Önnu Marjankowska. Stofan er tímabundið rými þar sem notendur bókasafnsins að kynnast því sem Anna telur ómissandi við sköpun vettvangs við þróun samfélaga og kanna leiðir til að koma á framfæri hagsmunamálum með ýmsum birtingamyndum sem verða til sýnis á staðnum.

Stofan er opin frá 23. til 30. nóvember á opnunartímum safnsins.

Stofan á Facebook.

Mánudaginn 29. nóvember býður Anna í samtal með íslenskum grasrótarsamtökum um samfélagsþjónustu. Hvernig hægt er að skilgreina þarfir nærsamfélaga og efla drifkraft og samstarf í ljósi þess sem við höfum lært af yfirstandandi heimsfaraldri? Samtalið hefst kl. 17.

Öll velkomin. Viðburðurinn er fjölskylduvænn. Í Stofunni er krakkahorn.

Um tilraunaverkefnið:
Stofan | A Public Living Room
Stofan er tímabundið samfélagsrými sem sett er upp mánaðarlega af ólíkum notendum með mismunandi hugmyndir um hvernig þeim langar að nota bókasafnið væri það þeirra eigin almenningsstofa. Hver skapar nýjan og óvæntan stað inni á safninu og hefur einhverskonar samtal. Gestum og gangandi er boðið að tilla sér niður, hafa það notalegt og hver veit nema úr verði gefandi samtal við næsta mann?

Meira um Stofuna hér.