Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur

Um þennan viðburð

Tími
17:15 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Kaffistundir
Spjall og umræður

FRESTAÐ Fræðakaffi | „Illt gerðir þú móðir, að varna mér lífs“

Mánudagur 31. janúar 2022

Vinsamlegast athugið að fræðakaffinu hefur verið frestað til 25. apríl n.k.

Hvað geta birtingarmyndir kvenna í þjóðsögum sagt okkur um viðhorfin í þeirra garð á fyrri tíð? Rannsóknir Dagrúnar Óskar Jónsdóttur þjóðfræðings beinast að þessu, en hún skoðar sérstaklega konur sem fóru gegn ríkjandi hugmyndum um hlutverk kvenna og hvað þótti kvenlegt á öldum áður, en þar var móðurhlutverkið haft í hávegum. 

Í þjóðsögunum má finna dæmi um konur sem höfnuðu móðurhlutverkinu, bæði giftar konur sem vildu vera barnlausar (en á þeim tíma var ætlast til þess að þær eignuðust börn) og svo ógiftar konur sem eignuðust börn og báru þau út, en þá gengu börnin aftur og refsuðu mæðrum sínum fyrir glæpinn, eins og í sögunni um Móður mína í kví, kví. 

Dagrún Ósk kynnir rannsóknir sínar á Fræðakaffi í Spönginni, verið öll velkomin! 

Frekari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is