
Leikritunarsmiðja
Borgarbókasafninu I Menningarhúsi Árbæ
17. febrúar og 3. mars, kl. 12:15-14:14
Borgarbókasafnið í samstarfi við Sögur - Verðlaunahátíð barnanna býður börnum frá aldrinum 9-12 ára að læra að skrifa leikritarhandrit undir leiðsögn Þorvalds Sigurbjarnar Helgasonar. Afrakstur námskeiðsins verður fullbúið leikritarhandrit sem börnin geta sent í samkeppni til KrakkaRÚV.
Borgarleikhúsið og Leikfélag Akureyrar velja tvö handrit og sviðsetja og verður besta handritið verðlaunað á stóru verðlaunahátíðinni næsta vor en hátíðin er sýnd beint frá Rúv.
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er sjálfstætt starfandi rithöfundur og sviðshöfundur búsettur í Reykjavík. Fyrsta ljóðabók Þorvaldar, Draumar á þvottasnúru, kom út vorið 2016 í seríunni Meðgönguljóð og önnur ljóðabók hans, Gangverk, kemur út hjá Forlaginu í febrúar. Hann er með BA gráðu frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands og meistaragráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Leikrit eftir Þorvald hafa m.a. verið sett upp á leiklistarhátíðinni Ungleik og hann hefur auk þess tekið þátt í fjölmörgum sjálfstæðum sviðslistaverkefnum undanfarin ár.
Námskeiðið er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.
Skráning fer fram hér.
Nánari upplýsingar:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
ingibjorg.osp.ottarsdottir [at] reykjavik.is
s. 411-6100