
Vilt þú læra að smíða vélmenni?
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Hefst miðvikudaginn 26. september kl 15:00-16:30
Einu sinni í viku í 10 vikur
Því miður er fullt í vélmennaklúbbinn í Spönginni
Í haust mun Borgarbókasafnið og Skema í HR stofna tvo nýja vélmennaklúbba í Gerðubergi og í Spönginni fyrir 10-12 ára krakka.
Í vélmennaklúbbunum lærum við að smíða vélmenni frá grunni og að stýra því með hjálp forritunar.
Klúbburinn hittist einu sinni í viku í 10 vikur með leiðbeinendum Skema í HR og í lok árs fær hver og einn meðlimur klúbbsins að eiga sitt vélmenni.
Frítt er að ganga í klúbbinn en skráning er nauðsynleg. Aðeins 12 pláss eru laus í hvern klúbb. Þú getur skráð barnið þitt hér
Vélmennaklúbburinn í Gerðubergi hittist á þriðjudögum kl 15:00– 16:30 Sjá hér
Vélmennaklúbburinn í Spönginni hittist á miðvikudögum kl 15:00-16:30
Frekari upplýsingar veitir
Guðrún Baldvinsdóttir
gudrun.baldvinsdottir [at] reykjavik.is
411-6182 / 661-6178