
Fjölskyldustundir fyrir yngstu börnin og foreldra þeirra.
Kaffi, notaleg stemning, spjall og samvera.
Borgarbókasafnið | Menningarhús Gerðubergi
Alla miðvikudagsmorgna kl 9:30
Þrír leikskólar í efra Breiðholti, Þjónustumiðstöð Breiðholts og Borgarbókasafnið í Gerðubergi bjóða foreldrum og fjölskyldum að mæta í fjölskyldustundir.
Fjölskyldustundir eru kjörinn vettvangur og tækifæri fyrir foreldra sem eru heima til að kynnast öðrum foreldrum, spjalla og eiga notalega stund í hlýlegu umhverfi.
Boðið er upp á kaffi og te, leikföng og bækur fyrir börnin. Reglulega er boðið upp á fjölbreytta fræðslu fyrir foreldra.
Fjölskyldustundirnar eru foreldrum að kostnaðarlausu og eru haldnir alla miðvikudaga
kl. 9:30 til 11:00 á bókasafninu í Menningarhúsinu Gerðubergi, 2. hæð.
Nánari upplýsingar veitir:
Bergrós Hilmarsdóttir
bergros.hilmarsdottir [at] reykjavik.is
411-6175