Viðburðir
Prjónakaffi (allt árið)
Það er prjónað af miklu kappi í Spönginni alla fimmtudaga kl. 13.30. Boðið er upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.
Café Lingua (september-maí)
Café Lingua er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á tungumálum, samskiptum og fjölbreyttri menningu. Í Café Lingua gefst tækifæri til að spjalla á móðurmálinu eða öðru tungumáli og er lögð áhersla á að kynna og varpa ljósi á mismunandi menningarheima á lifandi hátt s.s. með fyrirlestrum, umræðum, tónlist, kvikmyndum og öðru.
Fjölskyldustundir (september-maí)
Fjölskyldustundirnar eru ætlaðir fjölskyldum ungra barna. Þær eru á þriðjudögum í Gerðubergi kl. 13.30-14.30, á fimmtudögum í Grófinni kl. 10.30-11.30 og á þriðjudögum kl. 14 í Spönginni. Af og til er boðið upp á dagskrá sem tengist uppeldi og umönnun barna. Kaffi og vatn á boðstólum fyrir fullorðna og bækur og leikföng fyrir börnin.
Heilahristingur (september-maí)
Heilahristingur er heimanámsaðstoð fyrir börn og unglinga. Heilahristingurinn fer fram í Kringlunni á mánudögum kl. 14:00-16.00, í Gerðubergi á miðvikudögum kl. 14.30-15.30 og fyrir framhaldsskólanema í Grófinni fimmtudögum kl. 16:00-18:00.
Kvöldgöngur (júní-ágúst)
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.
Barnadagar um helgar (september-maí)
Það er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra á laugardögum í Gerðubergi og sunnudögum í Grófinni yfir vetrartímann. Sögustundir, föndur, kvikmyndasýningar, leikrit og margt, margt fleira. Dagskráin hefst kl. 14 í Gerðubergi og kl. 15 í Grófinni.
Kvæðamannafélagið Iðunn (mánaðarlega)
Kvæðalagaæfingar í Gerðubergi fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 20. Félagsfundur fyrsta föstudag í mánuði kl. 20. Nánar á rimur.is.
Leshringir (mánaðarlega, september-maí)
Leshringir Borgarbókasafns starfa yfir vetrartímann og eru öllum opnir á meðan pláss leyfir.
Söguhringur kvenna (mánaðarlega, september-maí)
Söguhringur kvenna er eitt fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafns en eins og önnur verkefni er söguhringurin opinn öllum. Söguhringurinn hittist fyrsta sunnudag í mánuði á 6. hæð í aðalsafni kl. 14.
Origami (mánaðarlega)
Origami Ísland, sem er félag áhugafólks um origami, leiðbeinir við gerð origamis þriðja sunnudag í mánuði í aðalsafni. Origami er skemmtilegt og þroskandi tómstundagaman og er víða notað til kennslu.
Myndasögusamkeppni
Borgarbókasafnið stendur fyrir myndasögusamkeppni fyrir ungt fólk í apríl, maí ár hvert.
Reykjavíkurtorgi aðalsafns eru sýningar allt árið um kring. Þar sýna listamenn sem eiga verk í Artótekinu auk fjölmargra annarra listmanna, nemenda, ljósmyndara og fleiri.
Kamesið
Kamesið er fjölnota rými á 5. hæð aðalsafns sem stendur almenningi til boða að nýta sér og þar er alltaf eitthvað um að vera allan ársins hring. Rýmið hentar undir viðburði af ýmsu tagi, s.s. sýningar á kvikmyndum og vídeóverkum, upplesturs, söguflutnings, kynninga, uppistands, leiksýninga, tónleika og fleiri uppákoma sem ekki þarfnast stórs rýmis.