
Minecraft og forritun | Tækni- og tilraunaverkstæði
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Laugardaginn 13. maí klukkan 13.00-15.00
Á síðasta tilraunaverkstæði vorsins munu leiðbeinendur Kóder kynna smátölvuna Raspberry Pi og Minecraft forritun. Þátttakendur munu kynnast forritunarmálinu Python og nota það til að búa til margt skrítið og skemmtilegt í hinum sívinsæla leik Minecraft. Um tveggja tíma námskeið er að ræða.
Athugið að það er nauðsynlegt að skrá sig á námskeiðið. Skráning fer fram hér.
Námskeiðið er ætlað 9-13 ára krökkum. Foreldrum er velkomið að koma með börnunum og læra með þeim og aðstoða þau.
Samtökin Kóder hafa staðið fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga í ýmiss konar forritun og starfa þau af mikilli hugsjón um að öll börn eigi að hafa greiðan aðgang að þeirri þekkingu sem felst í forritun - tæknikunnáttu og tæknilæsi. Borgarbókasafnið deilir þeirri hugsjón að tæknilæsi sé ákaflega mikilvægur þáttur í menntun barna og vill gefa sem flestum tækifæri til að kynnast ólíkum hliðum tækni.
Nánari upplýsingar veitir:
Nanna Guðmundsdóttir
nanna.gudmundsdottir [at] reykjavik.is
411 6230