Notaleg samvera og fræðsla með krílunum okkar
Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Alla þriðjudaga kl. 14-15
Í Borgarbókasafninu í Spönginni eru fjölskyldustundir sérstaklega ætlaðar börnum sem ekki eru komin á leikskólaaldur þó auðvitað séu eldri börn líka velkomin. Leikföng og bækur fyrir börnin eru á staðnum og heitt kaffi á könnunni.
Þriðja þriðjudag í mánuði er skipulögð foreldrafræðsla.
Í Grófinni eru einnig fjölskyldustundir. Þar er boðið upp á samsöng og gítarspil á hverjum fimmtudegi kl. 10.30 - 11.30.
Nánari upplýsingar veitir:
Nanna Guðmundsdóttir
Netfang: nanna.gudmundsdottir [at] reykjavik.is
Sími: 411 6230