Menningarmót
Fljúgandi teppi -menningarmót í skólum og leikskólum!
Á menningarmótum fá nemendur, foreldrar og starfsfólk tækifæri til að hittast og kynna menningu sína og áhugamál í hvetjandi umhverfi og á skemmtilegan og lifandi hátt. Hver þátttakandi er með sitt „svæði“ og kynnir sína menningu og áhugamál á margvíslegan hátt. Lögð er áhersla á að ekki sé einungis nauðsynlegt að vinna með þjóðarmenningu, heldur líka áhugamál og fyrst og fremst það sem skiptir mestu máli í lífi hvers og eins. Allir eru þátttakendur og áhorfendur um leið.
Hægt er að panta kynningu á menningarmótsverkefninu og ef óskað er þá er verkefnastjórinn tilbúinn til að leiðbeina og taka þátt í framkvæmd mótsins. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, sem er kennari og verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni, hefur notað menningarmótin með góðum árangri í kennslu bæði í Danmörku og á Íslandi.
Hér má sjá myndir og myndskeið frá menningarmóti í Háteigsskóla í 2008, myndir frá menningarmóti á leikskólanum Lindarborg og hér má lesa umsagnir kennara og skólastjóra um menningarmótin sem haldin hafa verið í skólum þeirra.
Markmið:
Að skapa hvetjandi umhverfi, þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk af erlendu bergi brotið og Íslendingar geta hist og kynnst menningu hvers annars.
Að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi.
Að skapa vettvang þar sem við getum undrast og hrifast af því, sem er líkt og ólíkt í menningu okkar.
Að hinir ólíku menningarheimar mætist í tónlist, dansi, myndlist, bókmenntum, kvikmyndum, matargerð, ævintýrum og goðsögnum, frásagnarlist, leiklist, leik og hreyfingu.
Að íslendingar og fólk af erlendum uppruna finni til stolts og gleði yfir eigin menningu og deili þeirri gleði og stolti með öðrum.
Að einstaklingar verði meðvitaðir um gildi eigin menningar við það að kynna hana fyrir öðrum.
Að þróa hæfileika barnanna til að geta tekið virkan þátt í samfélaginu og gera sér ljóst að ólík menning geti auðgað eigin menningu.


Hverjir taka þátt?
Börn, foreldrar, starfsfólk í skólum og leikskólum og innflytjendur í íslenskukennslu fá tækifæri til að kynna menningarheim sinn á skemmtilegan hátt. Menningarmótin hafa verið notuð með góðum árangri í tungumálakennslu fyrir fólk af erlendum uppruna bæði í Danmörku og hér á Íslandi.
Hægt er að halda menningarmótin á bókasafninu í ykkar hverfi eða í skólanum!
Hafið samband við:
Kristínu R. Vilhjálmsdóttur,
kennara og verkefnastjóra fjölmenningar
kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
Viltu fá þessar upplýsingarí bæklingaformi? Bæklingur um menningarmót (pdf 1.6 mb)
Til baka