norrænar kvikmyndir er yfirskrift útstillingar í tón- og mynddeild Borgarbókasafnsins í Grófarhúsi, í tilefni af opnun sýningar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á máluðum römmum úr kvikmyndum þeirra Friðriks Þórs Friðrikssonar og Lars von Triers. Auk kvikmynda frá norðurlöndum er stillt út efni um norrænar kvikmyndir, kvikmyndahandritum og svo má einnig lesa fréttir og ritdóma um fyrstu kvikmyndir Friðriks Þórs, úr úrklippusafni bókasafnsins. Þar á meðal er umfjöllun Thors Vilhjálmssonar um Skytturnar, greinar um ritskoðun á Rokk í Reykjavík og vegferð Barna náttúrunnar rakin "frá hugmynd til Hollywood".
Myndir úr Börnum náttúrunnar ( af heimasíðu Listasafns Reykjavíkur)